15mars

hættur

hættur með þetta blogg.. nýja má finna á ingvarli.minnsirkus.is
15. mars 2007 klukkan 16:02
Ingvar Linnet
Engin athugasemd
25desember

OMG Blog :o

Wow, langt síðan ég hef bloggað, lítur út fyrir að þetta blogg muni deyja hraðar en það síðasta.. spurning hvernig það fer.

Annars eru víst jól.. og já.. ég veit, það er aðfangadagskvöld og ég er í tölvunni sad.. but that´s my life!

Fékk fínustu jólagjafir.
Bók (Villtu vinna milljarð), aldrei heyrt um hana en gæti verði áhugaverð
Staupaleik.. sá sem gaf mér þetta fékk þetta í jólagjöf frá mér í fyrra, nískan í hámarki? ;)
Verkfærasett með ýmsum verkfærum, rosa flott gjöf, reyndar frá sama og gaf mér staupaleikinn svo það bætti það upp og meira til. Ekki það að ég vilji ekki eiga staupaleik. Reyndar shitty gjöf frá mér svo ég átti þetta svosem skilið.
Levis Buxur
Adidas peysu
Dogma Bol
Xbox fjarstýringu þráðlausa
Hálsmen.

Já, þetta er allt, MIG LANGAÐI Í MEIRA! Gráta

En maður má víst ekki vera gráðugur svo ég þakka bara fyrir mig, flottar gjafir Þögull sem gröfin

Annars svosem ekki mikið að frétta af mér, jújú.. það byrjaði jólafrí um daginn og í tilefni af því fékk maður útúr jólaprófunum.
Rekstrarhagfræði - 9
Þjóðarhagfræði - 9
Lögfræði - 9
Stjórnun - 9
Mæting - 8
Leikfimi - 8
Draupnir (skólablaðið) - 7
Rekstraráætlanir - 7
Stærðfræði - 6
Íslenska - 2 (tölum ekkert um það) Ullandi

Og minns bara ennþá vinnandi á Dominos en stefni á vaktstjórastöðuna innan tíðar, I WANT POWER!!! .. já.. nei.. uss.

Ekkert mikið fleirra að frétta svosem... Vonandi að maður bloggi aftur fljótlega

Lag dagsins:
Air Supply - Sleigh Ride
ásamt öðrum jólalögum
25. desember 2006 klukkan 03:40
Ingvar Linnet
2 athugasemdir
18nóvember

Endilega svarið

Jæja aumingjar, fyllið þetta út

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
18. nóvember 2006 klukkan 08:11
Ingvar Linnet
17 athugasemdir
11nóvember

Vinna, vinna og vinna meira

Vitiði hvað, ég var búinn að skrifa þetta fína blogg og rakst svo í back takkan.. svekkjandi fyrir mig. Svo ég ætla að setja þetta í nokkur orð

Var að koma heim úr vinnunni, var að vinna fra 18:00 - 06:00. Mæti svo í aðra vinnu kl. 02:00 í kvöld og verð þar eitthvað fram á nótt og mæti svo hress á sunnudagsmorgni uppí Dominos aftur kl. 10 og tek þar 10 tíma vakt. Heildarvinnutími minn yfir helgina nálgast 40 klukkustundir.. ætti að vera ágætt.

Annars var helvíti að sendast í þessu veðri.. var reyndar ekki eins slæmt og ég bjóst við, versti parturinn var að keyra, er búinn að gleyma hve oft ég fór útaf, uppá umferðareyju, uppá hringtorg, hálfur ofan í skurð, lenti næstum því ofan í læknum niðrí bæ. yarisar eru stórhættuleg ökutæki.

Annars ætla ég að fara að sofa þar sem það er enginn á MSN til að spjalla við mig. Megið vekja mig kl.15:00 á morgun, sá sem hringir fyrir þann tíma verður drepinn!
11. nóvember 2006 klukkan 12:39
Ingvar Linnet
Engin athugasemd
06nóvember

Nýtt blogg

Simpansa síðan er komin í eina köku, ég er þreyttur á útlitinu, nenni ekki að taka til á henni svo ég ætla að byrja með nýtt blogg, nema í þetta skiptið ætla ég að vera algjör aumingi og nota bara bloggar.is. Nenni hreinlega ekki að gera mína eigin síðu.

Hef ekki bloggað síðan 1.sept. Það eru tveir mánuðir síðan það var og mikið gerst, nærri því öll önnin liðin og svona.

Helsta er þó að ég útskrifast á næstu önn, fjögurra ára námssetu minni í Flensborg fer að ljúka, útskrifast með 148 einingar. Byrjaði á því að laga valið mitt fyrir þessa önn og gerði það nokkuð gott.
Hag 113 - Hav 113 - Hag 103 - Hag 183 - Hag 303 - Ísl 403 - Stæ 403 - Fjö 181 - Íþr 301.
Níu áfangar, er í skólablaðinu og svona. Næsta önn er svo ekkert hálfkák heldur.
Hag 203 - Hav 103 - Hav 203 - Nát 103 - Sag 203 - Ísl 503 - Ens 503 - Fjö 182 - Íþr 301 - Lok 181.
10 áfangar fyrir eina önn, verður alveg feikinóg að gera. Reyndar verður Hav 103 líklegast ekki kenndur svo ég get tekið stöðupróf í honum. Fjö 182 er skólablaðið og Lok er bara útskriftaráfanginn, svo þetta er ekkert alltof erfitt. Vona allaveganna ekki, má ekki falla í neinu fagi síðan, verður svolítið tæpt.



Og ég er kannski kominn með vinnu fyrir næsta sumar sem maður getur svo haldið aðeins áfram í, með Brynjari Harðar á bifvélaverkstæði Svalur



Sem minnir mig á, bíllinn er kominn á plötur þó hann sé ekki alveg ökuhæfur, nokkrir litlir hlutir sem er eftir að redda og þá er maður orðinn góður. Eftir marga mánuði. Búinn að skipta um pakkningar, ventla, bensínsíu, tímareimar, framdempara og allan andskotann. Lagaði skemmdir í innréttingunni, lagaði popup ljósin, pantaði nýja kastara frá bandaríkjunum. Keypti partabíl til að rífa sem er búið að henda núna og allskonar dóterí.



Hvað meira á maður að skrifa um, bara búinn að vera á fullu í partýum og allskonar, kynnast nýju fólki og gaman. Fórum til dæmis í gær á einhvern Billiard bar í Faxafeni og svo þaðan í eitthvað Hnakkapartý. Á föstudaginn var 17 ára afmælið hennar Rósu og kom allskonar fólk þaðan sem ég bjóst alls ekki við að sjá þar. En þetta var alveg gaman, þó maður varð létt svekktur á strákunum þarna í lokin.
Og ég skellti mér á Mýrina áðan með mömmu og pabba á 3 sýningu og svo fór ég með strákunum á Borat kl. 8. Fínn bíódagur hér á ferð. Jæja ég er hættur að tjá mig. bæbæ Hlæjandi
06. nóvember 2006 klukkan 05:23
Ingvar Linnet
6 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan